Orðin nett pirruð...
http://www.123.is/greifynjan/

....að ég er komin með málverk! Bókstaflega. En ég kláraði loksins að mála í gær. Var búin með alla í búðina og endaði á prinsessu herberginu sem er hvítt og innanp--- bleikt. Var svo að spá þar sem ég er orðin svo agalegur málari að mála geymsluna bara líka og gera hana soldið sæta.
Anyways þá er ég byrjuð á að keyra svona smádrasli yfir og ganga frá því jafnóðum svo ég verði nánast búin að koma mér fyrir um helgina þegar stóru stykkin fara. En hér með óska ég eftir skemmtilegu og hraustu fólki til að hjálpa til við að flytja...! Anyone...!![]()
En núna er ég semsagt búin að mála alla íbúðina nema herbergið hennar Kolbrúnar. Ég ætla að gera svona prinsessustíl á því, reyndar aðeins öðruvísi en síðast. Svo fer bara þessi vika í að klára að pakka og keyra yfir kassa og smádrasl. Stóra dótið verður svo tekið næstu helgi og er ég að stefna að því að sofa á nýja staðnum næsta laugardag. Þarf svo að klára að koma mér fyrir þar, þrífa á Holtsgötunni og baka. Ætla nefnilega að reyna að halda uppá afmælið hennar Kolbrúnar þar næstu helgi, sem er vinnuhelgi. Þannig að það verður sennilega svipuð þreyta í gangi þá. Er svo að spá í hvort ég eigi að skella mér til eyja helgina þar á eftir. En spurning um að spara aðeins því þá er bara vika í Færeyjarferðina. Úff busy mánuður!!! Ég ætla að vona að ég sofi ekki bara í Færeyjum!![]()
Rosalega hlakkar mig til að flytja af Holtsgötunni. Það er svo mikið af trjám þarna þannig að það er allt morandi í pöddum.....ojojojojoj.
Ekkert nema köngulær og eitthvað. Þær eru farnar að spinna vef á milli handriðanna í stiganum þannig að maður labbar alltaf í gegnum þá og svo var ein að spinna vef frá hjólinu mínu og að húsinu. Helv ógeð....geta ekki einu sinni látið hjólið manns í friði.![]()
Jæja nenni ekki að blogga meira....það er rétt að ég nái að halda rúllugardínunum (augnlokunum) uppi![]()
Anyways þá er bara allt gott að frétta af mér þessa dagana. Ég er alltaf að komast betur og betur að því að ég er með langbesta þjónustufulltrúa í heiminum. Hún hringdi í mig í gær og sagði mér að sennilega væri hún búin að redda þessu fyrir mig með íbúðarkaupin.
Það kostar reyndar smá fórnir hjá mér....sem sé...verð sennilega að selja Lexusinn. En þar sem ég var að kaupa mér svaka flott hjól ætti það að vera í lagi....ehem reyna að vera bjartsýn.![]()